Með því að fara inn á vefsvæðið okkar samþykkir þú sem notandi þessar reglur og skilmála.

 

Upplýsingar um fyrirtækið/söluaðilann

Birgisdætur ehf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Nafn: Birgisdætur ehf.

Kennitala: 520820-0430

Vsk númer: 138545

Heimilisfang: Langamýri 28, 210 Garđabæ

Símanúmer: 691-0958

Netfang: spilumsaman@spilumsaman.is

 

Afhending vöru

Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Allar pantanir er dreifðar af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Birgisdætur ehf. ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í sendingu. Hægt er að greiða 990 kr. aukalega fyrir rekjanlegt bréf. Hægt er að nálgast vöruna í Langamýri 28, 210 Garðabær. Einnig bjóðum við upp á fría heimsendingu á höfuðborgarsvæðinu ef verslað er fyrir 10.000,- kr eða meira.

 

Verð á vöru og sendingakostnaður

Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram.  

Að skipta og skila vöru

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað.

 

Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leyti vísast til laga um neytendakaup nr.48/2003 og laga um neytendasamninga.

 

Trúnaður (Öryggisskilmálar)

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Privacy policy All personal information will be strictly confidential and will not be given or sold to a third party.

 

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur.

Governing law / Jurisdiction These Terms and Conditions are in accordance with Icelandic law